Söluskilmálar

Útgáfa: 30. janúar 2026

Þessir skilmálar gilda fyrir kaup á vöru í vefverslun Sonik á www.sonik.is (vefpöntun) og við heimilisfang Sonik. Skilmálarnir eru staðfestir með staðfestingu á kaupum og eru grunnur að viðskiptunum. 

Skilmálarnir takmarka ekki ófrávíkjanleg réttindi neytenda samkvæmt íslenskum lögum. Fjallað er um neytendakaup í lögum um neytendakaup nr. 48/2003, lögum um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu nr. 30/2002, lögræðislögum nr. 71/1997, lögum um samningsgerð nr. 7/1936 og lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga nr. 77/2000.

1. Aðilar og skilgreiningar 

1.1. Seljandi: Sonik ehf., kt. 530514-0640 

  • Heimilisfang: Jöfursbás 4, 112 Reykjavík, Íslandi 

  • Sími: 517-7770 

1.2. Kaupandi: Aðili (einstaklingur eða lögaðili) sem leggur inn pöntun á vöru í vefverslun eða á þjónustustöð seljanda.

1.3. Neytandi: Einstaklingur sem kaupir vöru í tilgangi sem er ótengdur atvinnustarfsemi. 

1.4. Fyrirtækjakaup (B2B): Kaup þar sem kaupandi er lögaðili eða einstaklingur sem kaupir vöru í tilgangi sem varðar atvinnustarfsemi. 

1.5. Sérpöntun: Vara sem er ekki endilega tiltæk til afhendingar af lager seljanda við pöntun og er þá pöntuð sérstaklega frá birgja eftir móttöku pöntunar. 

1.6. Vörusíða: Lendingarsíða fyrir einstaka vöru í vefverslun Sonik, með myndir („vörumyndir“) og upplýsingar („vöruupplýsingar“) um viðkomandi vöru og þar sem má setja vöruna í körfu til pöntunar.

2. Gildissvið og forgangsröð skjala 

2.1. Þessir skilmálar gilda um öll kaup á vörum í vefverslun Sonik (www.sonik.is), á sölustað Sonik (Jöfursbás 4) og eftir atvikum kaup sem fara fram annars staðar á vegum Sonik, nema um annað sé sérstaklega samið. 

2.2. Eftirfarandi skjöl eru hluti af samningi milli Sonik og kaupanda. Ef ósamræmi er milli skjala gildir forgangur skjalanna í sömu röð og hér: 

  • i. Eftir atvikum sérútbúinn skriflegur kaupsamningur
  • ii. Þessir kaupskilmálar
  • iii. Staðfest pöntun á vöru í vefverslun
  • iv. Upplýsingar á vörusíðu(m) í vefverslun

3. Aldur og heimild til viðskipta 

3.1. Kaupandi sem er einstaklingur staðfestir að hafa náð minnst 16 ára aldri. 

3.2. Kaupandi sem er lögaðili staðfestir að einstaklingur sem pantar hafi heimild til að skuldbinda viðkomandi aðila. 

4. Vöruframboð, upplýsingar og ráðgjöf 

4.1. Sonik leitast við að birta réttar og uppfærðar upplýsingar.  

4.2. Myndir eru til skýringar og geta vikið frá endanlegri afhendingu, til dæmis hvað varðar litbrigði eða útgáfur, nema annað sé tekið fram. 

4.3. Ráðgjöf, svo sem um uppsetningu eða notkun á vöru, er veitt eftir bestu vitund en leysir kaupanda ekki undan því að sannreyna að varan henti tilgangi kaupanna. Þetta á sérstaklega við um fyrirtækjakaup þar sem tæknilegir forsendur kaupanna geta verið sértækari. 

5. Pöntunarferli og samningsstofnun 

5.1. Pöntun telst bindandi þegar greiðsla hefur verið samþykkt í greiðsluferli í vefverslun Sonik  og/eða þegar Sonik hefur staðfest pöntun með tölvupósti, eftir því sem við á. 

5.2. Sonik áskilur sér rétt til að hafna pöntun ef ástæða liggur fyrir, svo sem rangar upplýsinga, grunur um misnotkun, greiðsluvandamál, ófáanleiki vöru eða augljós verðvillu, og mun þá tilkynna kaupanda án ástæðulauss dráttar.

6. Verð, virðisaukaskattur (VSK), afslættir og verðvillur 

6.1. Verð í Vefverslun er birt í íslenskum krónum (ISK) og inniheldur virðisaukaskatt, nema annað sé sérstaklega tekið fram. 

6.2. Sendingarkostnaður og eftir atvikum önnur gjöld (t.d. uppsetning, burðargjald) eru birt áður en kaupandi staðfestir pöntun. 

6.3. Ef um augljósa verðvillu er að ræða (t.d. kerfisvilla) áskilur Sonik sér rétt til að ógilda pöntun og endurgreiða kaupanda fyrir kaupin, eða bjóða kaupanda að staðfesta pöntun á réttu verði. 

7. Greiðslur og reikningar 

6.1. Greiðslumátar í vefverslun eru þeir sem greiðsluþjónusta Teya býður upp á. Það er almennt með greiðslukorti, svo sem frá Visa eða MasterCard, m.a. í gegnum Apple Pay eða Google Pay.  

6.2. Greiðslumátar fyrir kaup utan vefverslunar geta verið með bankamillifærslu, greiðslukorti eða skuldfærslu á viðskiptareikning 

6.3. Ef greiðsla fyrir vefpöntun er ekki viðurkennd (e. authorised) innan 1 klukkustund frá því að tilraun til greiðslu er gerð í vefverslun, áskilur seljandi sér rétt til að aflýsa pöntuninni.  

6.4. Ef greitt er með bankamillifærslu hefst afgreiðsla pöntunar þegar starfsmaður Sonik hefur staðfest millifærsluna. 

6.5. Atriði varðandi skuldfærslur á viðskiptareikning falla undir skilmála reikningsins eða viðkomandi viðskiptasamkomulags. 

6.6. Fyrirtæki geta óskað eftir reikningi með viðeigandi upplýsingum (kennitölu, VSK-númeri ef við á, o.s.frv.). Sonik áskilur sér rétt til að gera lánshæfismat og/eða krefjast fyrirframgreiðslu þegar um reikningsviðskipti ræðir. 

6.7. Ef notast er við greiðslugátt við sérpöntun getur verið að greiðsla sé fyrst heimiluð og síðar færð til gjalds, í samræmi við valinn greiðslumáta og afhendingarferli seljanda. 

8. Afhending, afhendingartímar og afhendingarmátar 

8.1. Seljandi afhendir vörur bara innan Íslands. 

8.2. Afhendingarmáti vefpantana er að kaupandi sæki pöntun á heimilisfang seljanda þegar tilkynning hefur borist um að pöntunin sé tilbúin þar. Þetta á við nema um annað sé sérstaklega samið, svo sem að Sonik keyri pöntun til kaupanda, en þá þarf að semja og greiða sérstaklega fyrir það.  

8.3. Áætlaður afhendingartími er birtur á vörusíðu og/eða í pöntunarstaðfestingu. Afhendingartími getur breyst, svo sem vegna aðstæðna hjá birgja, flutninga, veðurs eða tollafgreiðslu. Sonik mun upplýsa kaupanda ef veruleg töf verður, um það hvenær von er á að pöntun verði tilbúin til afhendingar og eftir atvikum einnig bjóða staðgengilsvöru eða endurgreiðslu ef að varan er uppseld. 

8.4. Fyrir Sérpöntun er afhendingartími áætlaður grófar en fyrir vörur á lager Sonik. Afhendingartími er þá áætlaður út frá upplýsingum frá erlendum birgja vörunnar og reynslu Sonik á flutningum þaðan. Ef birgir getur ekki afhent innan sanngjarns tíma mun Sonik bjóða kaupanda viðeigandi úrræði, svo sem sambærilega vöru, lengri bið eða riftun pöntunar og endurgreiðslu. 

8.5. Ef kaupandi velur að sækja pöntun á heimilisfang Sonik skal sækja innan [X] daga frá því að tilkynning um að pöntun sé tilbúin er send, nema annað sé samið. Sé vara ekki sótt innan þess tíma áskilur Sonik sér rétt til að rifta pöntun og endurgreiða kaupanda, eftir atvikum að frádregnum beinum kostnaði sem hefur fallið til vegna pöntunarinnar (t.d. vegna endursendingar), þar sem lög leyfa. 

8.6. Ef kaupandi óskar eftir að sækja vöru seinna en [X] dögum frá tilkynningu um að pöntun sé tilbúin að vera sótt á heimilisfang Sonik, er geymslutími að hámarki 2 vikur. Ef kaupandi óskar eftir að geyma pöntun lengur en það er krafist vikulegs geymslugjalds sem um nemur 5% af upphæð vörunnar. 

9. Fráhvarfsréttur neytenda (fjarsala) og skilaréttur 

9.1. Þegar neytandi kaupir vöru í vefverslun hefur viðkomandi almennt 14 daga rétt til að falla frá samningi frá móttöku vöru, samkvæmt lögum. 

9.2. Ef neytandi fellur frá samningi innan 14 daga frá móttöku vöru, skal Sonik endurgreiða mótteknar greiðslur fyrir kaupin (eftir atvikum að meðtöldum sendingarkostnaði) innan 14 daga frá því að tilkynning um fráhvarf berst, með þeim fyrirvara sem lög heimila. 

9.3. Lögbundinn fráhvarfsréttur neytenda gildir almennt ekki um fyrirtækjakaup (B2B). Sonik getur þó veitt fyrirtækjum skilarétt eftir sérstakri stefnu/samkomulagi, sem skal þá koma fram skriflega.  

10. Galli í vöru, vöntun og úrræði 

10.1. Neytandi nýtur lögbundinna úrræða vegna galla samkvæmt lögum um neytendakaup nr. 48/2003. 

10.2. Ef vara reynist gölluð skal kaupandi tilkynna Sonik gallann eins fljótt og auðið er eftir afhendingu og lýsa gallanum, gjarnan bæði í texta og með mynd. Mælt er með að tilkynna galla innan 7 daga frá afhendingu og að gera það skriflega í tölvupósti til sonik@sonik.is vegna skráningargildis. Sonik skal staðfesta móttöku slíkrar tilkynningar með því að svara tölvupóstinum. 

10.3. Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé gölluð, þó innan eðlilegra tímamarka.  

10.4. Eftir að hafa tilkynnt um galla ber kaupandi ábyrgð á að koma viðkomandi vöru(m) til Sonik svo hægt sé að sannreyna að varan sé gölluð og eftir atvikum verða við úrræðum. Kaupandi ber kostnað vegna ferða með vöruna til Sonik vegna þessa og eftir atvikum frá Sonik eftir að úrræði hafa verið gerð. 

10.5. Gert er ráð fyrir að kaupandi hafi lesið og kynnt sér leiðbeiningar sem kunna að fylgja keyptri vöru við afhendingu og fylgt þeim við notkun vörunnar. Ef ljóst er að notkun vörunnar var ekki eins og ráðlagt eða eðlilegt er, til dæmis í leiðbeiningum, áskilur seljandi sér rétt til að neita að endurnýja eða gera við vöruna á kostnað Sonik. 

10.6. Ef ljóst er að átt hefur verið við vöru sem tilkynnt er gölluð án frumkvæðis Sonik, jafnvel þó viðkomandi sé viðurkenndur viðgerðaraðili, fellur réttur neytanda til úrræða vegna galla niður.  

10.7. Ef seljandi metur vöruna gallaða eða eitthvað vantar í vöruna skal seljandi bjóða kaupanda viðgerð, nýja vöru, það sem vantar í vöruna, afslátt, inneign eða afturköllun kaupa. Það fer eftir atvikum hvaða leið seljandi velur hverju sinni. 

10.8. Um galla og úrræði í fyrirtækjaviðskiptum kann að gilda lög um lausafjárkaup nema annað sé samið. 

11. Framleiðendaábyrgð og viðbótarþjónusta 

11.1. Sonik getur boðið viðbótarþjónustu, svo sem uppsetningu, ráðgjöf, viðbótartryggingar. Slík þjónusta kann að lúta sérstökum skilmálum sem kynntir eru við kaup vöru eða þjónustu. 

12. Eignarréttur og áhætta 

12.1. Áhætta af vöru flyst til kaupanda við afhendingu, samkvæmt viðeigandi reglum. 

12.2. Sonik áskilur sér eignarréttarfyrirvara þar til full greiðsla hefur borist, að því marki sem heimilt er í lögum. 

13. Takmörkun ábyrgðar (innan marka laga) 

13.1. Ekkert í þessum skilmálum takmarkar ófrávíkjanlegan rétt neytenda samkvæmt íslenskum lögum. 

13.2. Í fyrirtækjaviðskiptum (B2B) skal ábyrgð Sonik, að því marki sem heimilt er, ekki ná til óbeins tjóns, svo sem tekjutaps eða stöðvunarreksturs, nema um ásetning eða stórfellt gáleysi sé að ræða. 

14. Óviðráðanleg atvik (force majeure) 

14.1. Sonik ber ekki ábyrgð á vanefndum sem má rekja til óviðráðanlegra atvika á borð við náttúruhamfarir, verkfall, flutningatruflanir, farsóttir, eða stjórnvaldsákvörðun, svo lengi sem atvik og/eða afleiðingar standa. 

15. Persónuvernd 

15.1. Sonik vinnur persónuupplýsingar í tengslum við pantanir og þjónustu samkvæmt persónuverndarstefnu fyrirtækisins og lögum um persónuvernd. 

15.2. Seljandi fer með persónuupplýsingar sem eru mótteknar í tengslum við kaup sem trúnaðarmál og þær eingöngu nýttar í tilgangi tengdum þeim viðskiptum. 

16. Kvartanir, úrlausnarleiðir og lögsaga 

16.1. Komi upp ágreiningur skal kaupandi fyrst hafa samband við Sonik í tölvupósti (sonik@sonik.is) eða í síma ((+354) 517-7770). 

16.2. Neytendur geta, eftir atvikum, leitað til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa og/eða kynnt sér úrræði hjá Neytendastofu. 

16.3. Skilmálar þessir lúta íslenskum lögum. Mál sem ekki leysast með samkomulagi sæta meðferð fyrir dómstólum á Íslandi, nema ófrávíkjanlegar reglur neytendaréttar leiði annað. 

17. Breytingar á skilmálum 

17.1. Sonik getur uppfært þessa skilmála. Sú útgáfa sem er birt við pöntun gildir fyrir viðkomandi kaup.