VEISLUR OG SAMKOMUR

 

Viðburðurinn þinn er sérstakur. Við sérsníðum tæknilausnir eftir því.

tækniráðgjöf og
búnaður til leigu eða sölu


pARTÝ, VEISLA, ERFIDRYKKJA…

Hvert sem tilefnið er, stórt eða smátt, viljum við skapa ákveðna upplifun. Sonik finnur tæknilausnirnar til þess.

ÁRSHÁTÍÐ, tónleikar, BALL…

Við hönnum hljóð, mynd, lýsingu og sviðsmynd sem gerir viðburðinn eftirminnilegan fyrir alla viðstadda.

Fundur, ráðstefna, ársfundur…

Þú getur einbeitt þér að viðburðinum sjálfum þegar Sonik sér um tæknimálin.


ALLT SEM ÞARF

Hljóð

Sonik býður hljóðbúnað í hæsta gæðaflokki og við greinum umhverfið svo uppstillingar séu réttar. Þannig nær tónlist og tal vel til allra viðstaddra.

Mynd

Vilt þú taka upp, varpa á skjá, auglýsa eða eitthvað annað? Við hönnum skjálausnir sem allir njóta. Allt frá litlum og miðstórum skjáum til risaskjáa.

Lýsing

Góð lýsing er lykilatriði til að skapa upplifun. Hvort sem það eru ljóskastarar á sviði, einföld lýsing í rými eða magnaðar ljósaskreytingar - þá finnur Sonik lausnina.