Áfram að upplýsingum
1 af 13

Sonos

Ferðahátalari - Sonos Roam 2

Ferðahátalari - Sonos Roam 2

Venjulegt verð 31.490 kr
Venjulegt verð Útsöluverð 31.490 kr
Sérpöntun
Skattar meðtaldir

Sérpöntun

Njóttu Sonos hljómgæða á ferðinni með Roam 2 ferðahátalaranum - léttur, nettur, flottur og IP67 vatns- og rykvarinn. Einfalt að spila með Bluetooth eða WiFi.

Afhending

„Til á lager:“ Minnst eitt eintak er tilbúið til afhendingar á sölustað Sonik þegar kaup eru staðfest. Ef fleiri eintök eru pöntuð en eru til á lager eru umfram eintök afgreidd sem sérpöntun.

„Sérpöntun:“ Varan verður pöntuð frá dyggum birgjum okkar þegar kaup eru staðfest og þú færð skilaboð þegar pöntunin er tilbúin til afhendingar á sölustað Sonik. Það er almennt 5-7 virkum dögum eftir staðfestingu kaupa.

„Uppselt í bili:“ Varan er hvorki til á lager Sonik né birgja eins og er, en er væntanleg aftur. Við uppfærum stöðuna um leið og hægt er að panta vöruna.

Opnunartímar Sonik, staðsetning og fleira.

Helstu kostir

Þetta gerir Sonos Roam 2 vel:

  • Hágæða Sonos-hljóð vasaformi; nettur og léttur miðað kraftmikinn hljóm
  • Tilvalinn í ferðalag, útilegu, inn á baðherbergi eða flakk milli herbergja; IP67 vatns- og rykvörn + höggþol
  • WiFi heima (snjallhátalari) og Bluetooth á ferðinni
  • Hægt að fínstilla hljóð með Trueplay
  • Allt að 10 klst. rafhlöðuending
  • Einfalt að hlaða með USB-C
  • Styður Apple AirPlay 2 með WiFi
  • Sound Swap: Hægt að senda hljóð milli Roam 2 og næsta Sonos-tækis

Tæknispekkar

Hleðsla

  • 18Wh rafhlaða
  • Allt að 10 klst. spilun á hleðslu
  • Hlaðinn með USB-C (15W, 5V/3A) (eða Sonos Roam Wireless Charger eða þráðlausri Qi-vottaðri hleðslu)
  • USB-C (C-til-C) hleðslusnúra fylgir, en ekki straumbreytir

Örgjafi (CPU)

  • Quad Core 1,4 GHz A-53

Minni (RAM)

  • 1 GB SDRAM vinnsluminni
  • 4 GB NV geymsluminni

Tengingar

Roam 2 virkar bæði heima á Wi-Fi (hluti af Sonos-kerfi) og á ferðinni með Bluetooth.

Nettenging

  • Tengist WiFi með hvaða netbeini sem er með 802.11a/b/g/n/ac á 2,4 GHz og 5 GHz
  • Engin Ethernet-tenging (aðeins USB-C fyrir hleðslu)

Bluetooth

  • Tengist Bluetooth 5.3 tækjum

Raddstýring o.fl.

  • Sonos Voice Control og Amazon Alexa (framboð fer eftir löndum)
  • AirPlay 2 (á Wi-Fi)

Hljóð

Hátalaraeiningar

  • Tveir stafrænir magnarar (Class-H) fínstilltir fyrir hljóðhönnun Roam 2
  • Einn tweeter fyrir skýra hátíðni
  • Einn sporöskjulaga midwoofer fyrir góða miðtíðni og hámarks bassa miðað við stærð

Hljóðjöfnun og EQ

  • Í Sonos appinu má stilla bassa, diskant og hljóðstyrksjöfnun (loudness)

Trueplay og DSP

  • Auto Trueplay fínstillir hljóðið sjálfkrafa með innbyggðum hljóðnema

Stereo útfærsla

  • Hægt að para tvo Roam 2 í stereo í Sonos appinu þegar þeir eru tengdir Wi-Fi (annars ekki)

Stærð

Breidd x Dýpt x Hæð:

  • 62mm x 60mm x 168mm
  • (2,44" x 2,36" x 6,61")

Þyngd:

  • 0,43kg
  • (0,95lb)

Ábyrgð

Sonos Roam 2 er í ábyrgð í tvö ár eftir kaup fyrir einstaklinga og í eitt ár fyrir aðra lögaðila.

Sjá allar upplýsingar
  • Sound Swap fítus

    Haltu niðri spilunartakkanum til að senda hljóð í næsta Sonos hátalara

  • Mikill kraftur í smáum umbúðum

    Alvöru hljómgæði með þér á ferðinni

  • Til í næsta ævintýri

    Hannaður til að þola sól, skvettur, mikinn hita eða kulda, sand og snjó

1 af 3

Handhægur, vatnsheldur hátalari hannaður til að vera á ferðinni

Hleðsla sem endist ferðina

Allt að 10 klst. spilunartími með einni hleðslu. Hægt að hlaða hratt og örugglega með viðeigandi strumbreyti og USB-C snúru.

Sterkbyggður og til í ævintýri

Sonos hljóð með þér út í garð, á ströndina eða í gönguferðina, þökk sé sterkbyggðri en léttri hönnun og IP67 ryk- og vatnsheldnisvottun.

Nýttu Sonos til fulls

Með Sonos appinu og WiFi tengingu getur Roam 2 verið hluti af Sonos hljómkerfi heimilisins, sem gefur hágæða hljóðupplifun og fulla stjórn.

Spilaðu hvernig sem er

Roam 2 er fjölhæfur hátalari - virkar með Bluetooth hvar sem er og sem snjall hátalari heima fyrir.

Flottur á alla vegu

Roam 2 passar þínu umhverfi, hvort sem hann stendur til að spara pláss eða liggur fyrir aukinn stöðugleika. Hljóðið aðlagast sjálfkrafa til að gefa sem besta spilun.

Hvað er í kassanum?

  • Einn Sonos Roam 2 hátalari
  • USB-C í USB-C hleðslusnúra (1,2m)
  • Leiðbeiningar

Meira um Sonos Roam 2