Áfram að upplýsingum
1 af 22

Sonos

Hátalari - Sonos Era 300

Hátalari - Sonos Era 300

Venjulegt verð 78.990 kr
Venjulegt verð Útsöluverð 78.990 kr
Sérpöntun
Skattar meðtaldir

Sérpöntun

Color: Svartur

Öflugur hátalari með Dolby Atmos sem fyllir rými af góðum hljóm. Spilaðu í gegnum WiFi eða Bluetooth og bestaðu hljómburðinn í Sonos appinu.

Afhending

„Til á lager:“ Minnst eitt eintak er tilbúið til afhendingar á sölustað Sonik þegar kaup eru staðfest. Ef fleiri eintök eru pöntuð en eru til á lager eru umfram eintök afgreidd sem sérpöntun.

„Sérpöntun:“ Varan verður pöntuð frá dyggum birgjum okkar þegar kaup eru staðfest og þú færð skilaboð þegar pöntunin er tilbúin til afhendingar á sölustað Sonik. Það er almennt allt að tveimur vikum eftir staðfestingu kaupa.

„Uppselt í bili:“ Varan er hvorki til á lager Sonik né birgja eins og er, en er væntanleg aftur. Við uppfærum stöðuna um leið og hægt er að panta vöruna.

Opnunartímar Sonik, staðsetning og fleira.

Helstu kostir

Þetta gerir Sonos Era 300 vel:

  • Dolby Atmos (spatial audio) hljóðupplifun
  • Gefur hljóm sem fyllir rýmið - munur sem þú heyrir ekki bara, heldur finnur fyrir
  • Virkar með WiFi og Bluetooth
  • Styður Apple AirPlay 2
  • Hægt að fínstilla hljóð fyrir hvaða rými sem er með Trueplay
  • Öflugur í heimabíó, t.d. sem bakhátalari með Sonos Arc
  • Fágað útlit í anda innanhússhönnunar frekar en tækjabúnaðar

Tæknispekkar

Straumur

  • 100-240V, 50/60Hz
  • Innbyggður aflgjafi
  • 2 m rafmagnssnúra fylgir með

Örgjafi (CPU)

  • Quad‑Core 4×A55 1,9 GHz

Minni (RAM)

  • 2 GB DDR4 vinnsluminni
  • 8 GB eMMC geymsluminni

Tengingar

Era 300 er hannaður til að vera sveigjanlegur í uppsetningu - getur staðið einn, verið í stereo-pari, eða paraður við Sonos Arc eða Beam (Gen 2) sem hluti af surround-kerfi. Hann tengist þráðlaust með Wi-Fi og getur spilað í gegnum Bluetooth, auk þess sem hægt er að tengja line-in eða kapaltengi (Ethernet) með millistykki í USB-C port.

Nettenging

  • Tengist WiFi 6 með hvaða netbeini sem er með 802.11a/b/g/n/ac/ax á 2,4 GHz og 5 GHz
  • Kabaltenging (Ethernet) er möguleg með USB-C, Sonos Combo Adapter millistykki og Ethernet snúru (aukahlutir seldir sér)

Bluetooth

  • Bluetooth 5.3 fyrir hljóðstreymi frá hvaða Bluetooth tæki sem er
  • Þarf nettengingu til að vera notaður sem Bluetooth hátalari

USB-C (line-in/Ethernet)

  • USB-C portið er hannað fyrir line-in og Ethernet með Sonos Line-In Adapter eða Combo Adapter (seld sér)

Raddstýring o.fl.

  • Virkar með raddstýringu eins og Sonos Voice Control og Amazon Alexa - Sjá nánar hér
  • Framboð getur verið misjafnt milli landa og tungumála
  • Virkar með Apple AirPlay 2 (iOS 11.4 eða nýrra)
  • Hægt að spila frá Spotify í gegnum Sonos appið eða Spotify Connect

Hljóð

Hátalaraeiningar

  • Sex stafrænir magnarar (Class‑D), fínstilltir fyrir hljóðhönnun Era 300
  • Fjórir tweeterar fyrir skarpa spilun í hárri og miðhárri tíðni
  • Tveir wooferar sem besta lágtíðni og halla til hægri/vinstri til að styðja stereo spilun

Dolby Atmos

  • Styður 3D spilun eins og Dolby Atmos sem gefur alltumlykjandi hljóðupplifun

Hljóðjöfnun og EQ

  • Í Sonos appinu má stilla bassa, diskant og hljóðstyrksjöfnun (loudness)

Stereo útfærsla

  • Tveir paraðir Era 300 gefa víðari hljóm og dýpri hljóðupplifun
  • Tilvalið fyrir umlykjandi heimabíóupplifun

Trueplay og DSP

  • Trueplay mælir hljómburð rýmis og fínstillir hljóðjöfnun (EQ)
  • Virkar með iOS og Android; Advanced Tuning krefst studds iOS/iPadOS tækis

Stærð

Breidd x Dýpt x Hæð:

  • 260mm x 160mm x 185mm
  • (10,24" x 6,3" x 7,28")

Þyngd:

  • 4,47kg
  • (9,85lb)

Ábyrgð

Sonos Era 300 er í ábyrgð í tvö ár eftir kaup fyrir einstaklinga og í eitt ár fyrir aðra lögaðila.

Sjá allar upplýsingar
  • Handfrjálst eða ekki

    Stilltu hljómstyrk og fleira í Sonos appinu eða á hátalaranum sjálfum

  • Fáguð hönnun

    Fellur vel að umhverfinu og lagar sig að þínum stíl

  • Einfalt að spila

    Streymir yfir Bluetooth, frá ólíkum veitum og tækjum

1 af 3

Besta hljóðið alls staðar

Hljóðupplifunin ætti að vera óaðfinnanleg hvar sem þú ert í rýminu og hvaðan sem þú spilar. Sérhannaðir 'waveguides' tryggja breiðara og jafnara hljómsvið svo hljómurinn njóti sín alls staðar.

Umlykjandi hljóðupplifun

Uppskrift að mögnuðu heimahljóðkerfi: Tveir Era 300 með Arc eða Beam 2. Enn öflugra með Dolby Atmos til að skapa hljóðrásir fyrir allt umlykjandi hljómsvið.

Ótrúlega einföld uppsetning

Úr umbúðum í spilun á örfáum mínútum. Þú einfaldlega stingur hátalaranum í samband, tengir snjalltæki yfir WiFi og byrjar að spila.

Góð app-upplifun

Sonos appið safnar öllu efni og öllum stillingum á einn stað.

Sérhannaðir fylgihlutir

Þú getur bestað staðsetningu og útlit Sonos tækjanna með sérhönnuðum stöndum eða veggfestingum sem lágmarka endurkast og fela snúrur

Hluti af fjölskyldunni

Era 300 fellur vel að umhverfinu og vinnur vel með öðrum vörum í Sonos fjölskyldunni

Enn betri hljóðupplifun

Hljóðhönnun Era 300 getur látið tónlist, tölvuleiki og bíó umlykja þig og fylla út í rýmið - þökk sé sex vel staðsettum driverum og stuðning við Dolby Atmos Music.

Hvað er í kassanum?

  • Einn Sonos Era 300 hátalari
  • Hleðslusnúra (2m)
  • Leiðbeiningar

Stillir sig sjálfur, fyrir þitt rými

Með nokkrum smellum í Sonos appinu getur Trueplay tæknin greint hljómburð rýmisins og aðlagað spilunina svo hvað sem þú spilar hljómi alveg eins og það á að gera.

Passar vel með